Er vond lykt úr þvottavélinni?
Share
Hver kannast ekki við það að vond lykt sé farin að myndast í þvottavélinni og af fötunum manns? Kannski gleymdust föt í vélinni of lengi, eða vélin hefur verið lokuð of lengi eftir þvott.
Ef ólykt er farin að myndast er líklegast kominn tími til að þrífa vélina, en mygla getur farið að myndast í þvottavélum þrátt fyrir að þú sjáir hana ekki.
Hvernig hreinsa ég myglu úr þvottavélinni?
- Byrjið á að þvo sápuhólfið vel.
- Setjið 1 dl af https://mosey.is/products/mygluhreinsir-fyrir-thvottavelar í mýkingarefnishólfið og 2dl í belg vélarinnar
- Stillið þvottavélina á 60°C prógramm. Þegar vélin hefur dæt vatni inn á sig og belgurinn snúist nokkra hringi, stöðvið vélina og látið hana standa í 30 mínútur.
- Kveikið svo aftur á vélinni og leyfið henni að klára prógrammið.
- Að því loknu skal opna vélina og leyfa henni að standa opinni þangað til hún er þurr.
Góð regla er að þrífa þvottavélina reglulega, á eins mánaða fresti eða svo eða ef þú hefur verið að þvo sérstaklega skítugan fatnað.