Um Mosey

Árið 2012 var Mosey ehf. stofnað. Starfssemi fyrirtækisins félst fyrst og fremst í ástandsskoðunum húsa. Markmiðið var að hjálpa fólki sem bjó við mynglu og önnur heilsuspillandi vandamál vegna húsnæðis. Við sáum vandann og sáum að láusnirnar sem voru til á markaðnum voru ekki nógu góðar.

Of sterk efni. Of mikil ilmefni. Of mikið af efnum sem enginn þarf.

 

Árið 2013 sendum við fyrsta reikninginn okkar. Keyptum umbúðir. Framleiðslan hófst.

Myglu og sveppaeyðir, Mygluhreinsir fyrir þvottavélar, S-44 hreinsir. Allt blandað í 1L brúsum, fyllt á með höndunum.

2014 fluttum við til Selfoss. Húsnæðið hafði engan vask með rennandi vatni. Við bárum vatn í fötum til framleiðslunnar. Handlímdum alla miða á vörurnar. Keyrðum vörurnar út á lélegum bíl.

 

Árið 2015 breyttistr fyrirtækið. Við hættum með ástandskoðanir og einbeittum okkur alfarið að framleiðslunni. Framleiðslan fluttist í Hellismýri á Selfossi, og við byrjuðum að framleiða í 500ml flöskum úr HDPE plasti.

2018 keyptum við okkar fyrstu vélar. Álímarvél og 750L mjólkurtank sem við sóttum austur á land. Loksins gátum við blandað stærri blöndur. 


Af hverju engin ilmefni?

Mörg hreinsiefni nota ilmefni til að fela hvort þau nái að þrífa eitthvað. Mosey notar þau ekki.

Það þýðir að vörurnar okkar henta fólki sem næma húð, ilmefnaofnæmi, börnum og öllum sem vilja vita nákvæmlega hvað þau nota í þrifunum heima.

Innihaldslistinn okkar er stuttur. Af ásettu ráði.

Fagmennirnir treysta okkur

Nostra ræstingar, eitt af stærstu ræstingarfyrirtækjum landsins, notar Mosey hreinsiefni í allri sinni þjónustu - Tveir í einum, Sturtuhreinsir, Lyktareyðir. 

Fagaðilar þola ekki efni sem virka ekki.

Þessi efni er líka aðgengileg beint til þín.

 

Mosey í dag.

Mosey hefur flutt á Eyrartröð í Hafnarfirði. Vörurnar eru íslenskar - Þróaðar, framleiddar og pakkaðar hér á landi, með íslensku vatni og íslenskar aðstæður í huga.

Umbúðirnar eru úr HDPE plasti, sem þýðir að þær draga ekki innihaldið í sig, og þær eru 100% endurnýtanlegar. Við bjóðum upp á áfyllingar á flestum vörunum okkar.

 


Sale

Unavailable

Sold Out