Algengar spurningar
Hér má finna svör við ýmsum algengum spurningum varðandi Mosey vörurnar
Hvar get ég keypt Mosey hreinsiefni?
Mosey hreinsiefni eru fáanleg í völdum verslunum um land allt. Sjá lista yfir endursöluaðila hér: Endursöluaðilar. Einnig er hægt að panta beint á mosey.is.
Úr hverju eru umbúðirnar hjá Mosey hreinsiefnum?
Allar umbúðir hjá Mosey eru úr HDPE plasti. Það þýðir að umbúðirnar taka ekki til sín innihaldið úr brúsunum. Þær eru því 100% endurnýtanlegar.
Hvar eru Mosey hreinsiefni framleidd?
Mosey hreinsiefnin eru framleitt á Ísland, í verksmiðju okkar í Hafnarfirði. Umbúðirnar eru einnig íslenskar, og er því kolefnisspor hreinsiefnanna minni en almennt er.
Get ég keypt áfyllingar?
Já! Flestar vörurnar okkar er hægt að kaupa í 1L pakkninum og 2,5L pakkningum. Þú getur því keypt áfyllingu og sett á spreybrúsann heima.
Hér sérðu allar vörur okkar sem eru fáanlegar í áfyllingu
Af hverju á ég að kaupa áfyllingu?
Spreyhausinn á hreinsiefnabrúsum er sá hluti sem er erfiðastur að endurvinna og er flóknastur í framleiðslu, hann er úr mörgum mismunandi plasthlutum. Með því að kaupa áfyllingu og nota sama hausinn aftur og aftur stuðlar þú að minni plastnotkun. Þú sparar líka pening. Sjá allar áfyllingar hér: Áfyllingar.
Hversu lengi endist ein flaska?
Það fer eftir notkun og um hvaða vöru, en 500ml flaska af lyktareyði endist til dæmis í nokkrar vikur með reglulegri notkun á heimilinu. Með því að kaupa áfyllingu og nota sama brúsann aftur sparar þú bæði pening og minnkar plastnotkun.
Er hægt að nota Mosey hreinsiefni með börn á heimilinu?
Já! Mosey hreinsiefni eru ilmefnalaus og án litarefna. Þau eru hönnuð með heilsu fjölskyldunnar í huga. Við mælum þó alltaf með því að geyma hreinsiefni þar sem börn ná ekki til, eins og á við með öll hreinsiefni.
Hvernig nota ég Mosey vörurnar?
Nákvæmar leiðbeiningar um notkun og meðhöndlun Mosey hreinsiefna má finna á umbúðununum. Einnig eru notkunarleiðbeiningar á vörusíðum.
Henta Mosey vörur fyrir viðkvæma húð?
Mosey vörur eru ilmefnalausar og án litarefna sem hentar fyrir viðkvæma húð. Ef þú ert í vafa mælum við með að lesa innihaldsyfirlit á vörusíðunni eða hafa samband við okkur.
Er hægt að blanda Mosey hreinsiefnum saman?
Nei - við mælum ekki með því að blanda hreinsiefnum saman. Notaðu hvert efni fyrir sig samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum.
Hversu langan tíma tekur afhending?
Við reynum að afgreiða pantanir sem fyrst. Afhendingartími fer eftir þjónustuaðila en við reynum að miða við að koma pöntunum af stað innan 1-3 virkra daga.
Bjóðið þið upp á B2B eða stórkaup? Já - Við bjóðum upp á sérlausnir fyrir fyrirtæki, stofnanir og fagaðila sem nota mikið magn af hreinsiefnum. Hafðu samband við okkur og við finnum lausn sem hentar þínum þörfum: Hafa samband.
Finnur þú ekki svar við spurningunni þinni? Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér.