Skilmálar

Almennt

Mosey ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Viðskiptavinum er óheimilt að endurselja vörur sem keyptar eru hjá Mosey ehf

 

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, lokað er um helgar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp.is og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp.is um afhendingu vörunnar. Mosey ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Mosey ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

 

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum, upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað eða skipt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Vinsamlegast hafið samband við Mosey ehf. með spurningar.

 

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Uppgefin verð eru í ISK. Verð sem birtist í vefversluninni er ýmist með 11% eða 24% virðisaukaskatti, allt eftir gerð vöru.

 

Greiðslumáti

Í vefverslun Mosey.is er boðið upp á nokkrar greiðsluleiðir; 

Með greiðslukorti eða debetkortum: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send. Mögulegt er að greiða pöntun með Visa og Mastercard, kredit eða debet kortum.

AUR: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send. 

Netgíró: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

 

Ábyrgð á vöru

2 ára verksmiðjuábyrgð er á endurhlaðanlegum tækjum gegn framvísun kvittunar. Aðrar vörur eins og fatnaður og krem eru með 14 daga ábyrgð. Ef vara reynist gölluð er vörunni skipt út fyrir sömu vöru. Ekki er hægt að skipta vöru í aðra vöru. Tveggja ára ábyrgð er á öllum endurhlaðanlegum tækjum hjá Mosey.is

Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla svo sem rof á tengingu við takka eða mótor. 

Ábyrgðin nær ekki yfir raka skemmdir, högg skemmdir, rafhlöðu eða útlits skemmdir. 

 

 

 

 

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Mosey á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

Aðrar upplýsingar 

Netfang: mosey@mosey.is

Símanúmer: 865-8076

Hellismyri 14

800 Selfoss

Kt: 550396-2629

VSK Númer 50352

Banka upplýsingar 0152-26-5503

 

Öryggi

Það er öruggt að versla í vefverslun Mosey.is. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila


Sale

Unavailable

Sold Out