Fúkkalykt - Hvaðan kemur hún og hvernig losnar þú við hana?
Share
Er fúkkalykt af fötunum, þvottavélinni eða fataskápnum?
Hér förum við nánar í saumanna á hvaðan fúkkalykt kemur og hvernig þú losnar við hana fyrir fullt og allt.
Fúkkalykt er ein af þessum lyktum sem er erfitt að horfa framhjá, hún minnir á raka, gamalt loft og myglu. Fúkkalykt finnst helst í fataskápum, þvottvélum, geymslum og í sumarbústaðnum. Því fyrr sem þú tekur á henni, því minni líkur eru á að hún festi sig.
Hvað er fúkkalykt og hvaðan kemur hún?
Fúkkalykt myndast vanalega þar sem raki, lítil loftun og lífrænar agnir koma saman. Þetta eru kjöraðstæður fyrir bakteríur og myglusvepp til að myndast, sem gefa þá frá sér þessa einkennandi þungu lykt. Algengustu staðirnir þar sem fúkkalykt myndast eru:
Þvottavélin
Sápuleifar og raki í þvottavélinni, og sápuskúffunni. Gott ráð er að hafa þvottavélina og sápuhólfið opið þegar vélin er ekki í notkun, svo að lofti aðeins um.
Fataskápar og skúffur
Föt sem eru lögð til hliðar í lengri tíma, sérstaklega þau sem voru kannski ekki orðin fullþurr.
Geymslur, kjallarar og háaloft: Lítil loftun og hærra rakastig, og ekkert endilega verið að skoða eða pæla í loftinu og rakanum á svona svæðum.

Sumarbústaðir
Standa oft ónotaðir lengi, oft í röku umhverfi.
Fatnaður og tau
Blaut föt, íþróttatöskur sem fá ekki að þorna almennilega eru sett inn í skáp, skúffu og bíða svo þar með lítilli loftun, engu sólarljósi og byrjar að myndast þung lykt.
Hvernig losnar þú við fúkkalykt?
Þvottavélin
Fúkkalykt úr þvottavélinni er oftast merki um sveppavöxt í sápuskúffunni eða þéttilistanum við hurðina. Taktu sápuskúffuna út, þrífðu vel og farðu vandlega yfir gúmmílistann í kringum hurðina, þar safnast oft mest af rakanum. Einnig er gott að nýta tækifærið og þrífa tromluna (þar sem þvotturinn fer) með sótthreinsandi efnum líkt og Mygluhreinsi fyrir þvottavélar.
Fyrst að þú ert byrjuð/byrjaður að þrífa vélina, mundu að tæma hólfið neðst á vélinni! Þar er yfirleitt lítill tappi/filter sem safnar hárum, ló og skítugu vatni, sem gott er að tæma, því annars byrjar að myndast vond lykt úr vélinni, eða hún byrjar að birta viðvaranir og villur.
Fataskápar og skúffur
Ef fúkkalykt er komin í fatakskápinn er gott að tæma hann alveg, þurrka af öllum flötum með sótthreinsandi efnum líkt og Tveir í einum og lofta vel áður en fötin fara aftur inn í skápinn. Ef mikil fúkkalykt er farin að myndast fötunum, þarf oft að þvo þau sérstaklega til að losna alveg við hana - Venjulegt þvottaefni eitt og sér ræður ekki alltaf við fasta fúkkalykt.
Geymslur, kjallarar, sumarbústaðir og háaloft.
Hér er loftun aðalatriðið. Ef er að koma á einhverskonar rakastýringu eða einfaldlega lofta reglulega út úr rýminu minnkar hættan á að fúkkalykt myndist. Þegar lyktin er komin í veggi, hillur eða gólf þarf að þrífa fleti vandlega með efnum sem ráðast bæði á bakteríur og lyktina sjálfa, ekki efni sem fela ólyktina bara með ilmefnum.

Af hverju ilmefni leysa ekki vandamálið?
Algengt er að grípa til ilmspreyja eða þvottaefna með mjög sterkri lykt til þess að fela fúkkalyktina. Það er því miður tímabundin lausn, því bakteríurnar eða sveppagróðurinn er enn til staðar. Til að losna við fúkkalykt þarftu að eyða orsökinni, ekki bara fela hana.