Heita pottur við skógarbrún. Í bakgrunn er vatn og skógur til vinstri

Hvernig þríf ég heita pottinn? Allt sem þú þarft að vita | Mosey.is

Sumarið er komið og margir að kveikja á eða byrja nota heita pottinn aftur meira eftir veturinn

Þú lyftir lokinu, setur vatn í, og eitthvað er ekki alveg rétt. Kannski er klórlykt. Kannski koma svartar flygsur eða hvít korn úr nuddstútunum þegar þú kveikir á dælunum.

Þetta er algengara en margir halda. Og það er hægt að koma í veg fyrir það, ef maður veit hvernig á að þrífa pottinn rétt.


Af hverju koma svartar flygsur úr nuddstútunum?

Þetta er spurning sem margir spyrja sig að.

Í vatnsleiðslum heitapotta setjast örverur og mygla. Þar er hlýtt, rakt og dökkt , nákvæmlega það umhverfi sem örverur þrífast best í. Þegar þú kveikir á nuddkerfinu koma þær út með vatninu í formi svartra flygna.

Þetta er ekki merki um að potturinn sé gamall eða bilaður. Þetta er merki um að það þurfi að hreinsa vatnsleiðslurnar.


Hvað er vandinn með klór?

Klór er langalgengasta lausnin og hún virkar að hluta til. En klór fylgir líka vandamál.

Klórinn sest í vatnsleiðslurnar með tímanum og kemur svo út um nuddstútana í formi hvítra korna sem líkjast flösu. Auk þess þarf að fylgjast stöðugt með magninu sem er í pottinum: of lítið og örverurnar vaxa, of mikið og vatnið ertir húðina.

Og svo er lyktin. Fólk sem á heitan pott vill slaka á í honum. Ekki sitja í klórbaði

Auk þess er klórofnæmi vandamál hjá mörgum, og því hentar klór ekki alltaf.


Hvernig þríf ég heita pottinn rétt?

Það eru tvær tegundir af hreinsun sem þú þarft að þekkja: dagleg umhirða og djúphreinsun.

Dagleg umhirða

Þegar þú ert að skipta um vatn og setja pottinn í gang:

  1. Tæmdu pottinn alveg og skolaðu burt allar leifar af eldri efnum, sérstaklega ef klór hefur verið notaður
  2. Þrifðu yfirborð pottarins með Myglueyðir til að sótthreinsa áður en nýtt vatn fer inn
  3. Fylltu pottinn af hreinu vatni
  4. Settu 500 ml af Mosey Sótthreinsir í vatnið
  5. Potturinn er tilbúinn til notkunar. Ekkert annað þarf

Vatnið heldur sama pH gildi í allt að sex mánuði þótt potturinn sé mikið notaður. Engin frekari meðhöndlun þarf á þeim tíma.

Djúphreinsun - þegar leiðslurnar þurfa að fá meðhöndlun

Ef þú sérð svartar flygsur, hvít korn eða önnur merki um uppsöfnun í vatnsleiðslunum þarf að djúphreinsa:

  1. Tæmdu pottinn alveg og skolaðu burt allar leifar af eldri efnum
  2. Fylltu pottinn af hreinu vatni
  3. Helltu öllum 2500 ml brúsanum af Sótthreinsi í vatnið
  4. Settu dælur og nuddkerfi í gang og láttu ganga í minnst eina klukkustund
  5. Ef froða byrjar að freyða yfir brún - stöðvaðu dælur, leyfðu froðunni að setjast, kveiktu svo aftur
  6. Tæmdu óhreina vatnið þegar klárað
  7. Þrifðu yfirborð með Myglueyðir og fylgdu svo leiðbeiningum um daglega umhirðu hér að ofan

Af hverju ekki klór?

Mosey Sótthreinsir fyrir heita potta kemur í stað klórs, klórtaflna og annarra hefðbundinna hreinsiefna.

Munurinn er þríþættur:

  • Einfaldara - 500 ml í 1000 lítra pott, ekkert annað efni þarf í vatnið
  • Langvirkt - vatnið stendur í allt að sex mánuði án frekari meðhöndlunar
  • Án klórs, alkóhóls, ilm- og litarefna - engin lykt, engin ertingarefni

pH gildið heldur sér á milli 6.0 og 8.0 - það er hlutlægt og öruggt fyrir húðina.


Hvenær á að skipta um vatn?

Jafnvel með góðu hreinsiefni er gott að skipta um vatn reglulega. Sem meginregla:

  • Við mikla notkun - á tveggja til þriggja mánaða fresti
  • Við litla notkun - á sex mánaða fresti eða þegar pH gildi fer að breytast
  • Alltaf þegar sýnileg merki eru um óhreinindi eða lykt

Heitipotturinn er til að slaka og njóta. Ekki til að hafa áhyggjur af

Með réttri hreinsun og réttu efni er hann tilbúinn þegar þú ert - alla leið í gegnum sumarið.

Skoðaðu Mosey Sótthreinsir fyrir heita potta →

Hvítur plastbrúsi með bláum límmiða.
Á miðanum stendur "Mosey Sóthreinsir fyrir heita potta og baðkör með loftnuddi"


Mosey er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir umhverfisvænar hreinlætnisvörur. Allar vörur eru þróaðar með áherslu á virkni - ekki ilmefni.

Back to blog