Hvernig losnar maður við svitalykt úr fötum? (og af hverju kemur hún aftur)
Share
Þú átt geggjaða æfingu og kemur svo heim.
Þú setur íþróttafötin í þvottavélin, hengur þau upp til þerris og setur þau í íþróttatöskuna.
Svo ferðu á æfingu. Og eftir fimm mínútur er lyktin komin aftur.
Þetta er þekkt vandamál. Og það er ekki þvottavélin sem er að bregðast þér.

Af hverju fer ekki svitalykt úr fötum með venjulegum þvotti?
Vandinn er ekki svitinn sjálfur. Sviti er í raun lyktarlaus.
Lyktin kemur frá örverum — bakteríum sem lifa í trefjum fatnaðarins og brjóta niður svitann. Þær framleiða efnasamböndin sem við þekkjum sem svitalykt.
Venjulegt þvottaefni þrífur ysta lagið, fjarlægir óhreinindi og fitu. En nær ekki alltaf að drepa bakteríurnar sem hafa sest að djúpt í trefjunum. Sérstaklega í gerviefnum eins og pólýester og næloni, sem eru algeng í íþróttafötum, geta bakteríurnar gengið í gegnum þvottinn nánast óskaddaðar.
Niðurstaðan er því sú að fötin lykta vel þegar þau eru þurr. En um leið og líkamshitinn fer upp og sviti fer að myndast, vakna bakteríurnar við og lyktin kemur aftur.
Hvað virkar þá?
Lausnin er að ráðast á örverurnar sjálfar — ekki að fela lyktina með sterkum ilmefnum.
Það eru nokkrar leiðir sem virka:
-
Edik í þvott
Hvítt edik er létt sýra sem getur drepið hluta af bakteríunum. Bættu hálfum bolla af hvítu ediki við þvottinn í stað þvottaefnis, eða láttu fötin liggja í ediki í 30 mínútur áður en hann fer í þvottavél. Hjálpar, en er ekki alltaf nóg á erfiðar lyktir.
2. Beinn hiti
Hár hiti drepur bakteríur. Vandinn er að mikið af íþróttafatnaði þolir ekki háan hita í þvotti eða þurrkara — og hitinn getur eyðilagt efnið með tímanum.
3. Sólarljós
UV-geislar frá sólinni eru náttúrulega sótthreinsandi, og drepa bakteríur. Hengdu fötin upp í sólinni eftir þvott — það hjálpar. En á Íslandi er ekki alltaf hægt að treysta á sólina.
Ps. Sólarljós getur náð blettum úr hvítum flíkum!
4. Lyktareyðir sem virkar á örverurnar
Þetta er nýjasta og beinasta leiðin. Í stað þess að þvo og vona það besta — spreyjaru beint á fötin og lætur efnið vinna.
Hvernig virkar Mosey Lyktareyðir?
Mosey Lyktareyðir er íslenskt vara sem er hönnuð til þess að leysa þetta vandamál
Þú spreyir beint á fötin — á svæðin þar sem lyktin situr, t.d. handarkrika, hálsmál eða klofið á íþróttabuxunum. Efnið í lyktareyðinum ræðst á örverurnar sem mynda lyktina og drepur þær. Lyktin hverfur — ekki falin, heldur búið að eyða henni
Það eru engin ilmefni í vörunni. Fötin lykta því ekki af neinu öðru, heldur verða einfaldlega lyktarlaus.
Þetta hentar sérstaklega vel á:
- Íþróttaföt og líkamsræktarfatnað
- Fatnað sem má ekki þvo á háum hita
- Föt sem lykta enn eftir þvott
- Skó með mikilli táfýlu
- Pissulykt úr barnafötum
Ráð til að halda fötum lyktarlausum lengur
Jafnvel þótt þú notir lyktareyði er gott að þekkja nokkur einföld ráð:
- Þvoðu fljótt eftir æfingu — því lengur sem bakteríurnar sitja í þurrum, heitum trefjum, því meira festist lyktin
- Leyfðu fötunum að lofta — ekki henda þeim strax í þvottakörfuna þar sem þeim er þrykkt saman í hita og raka
- Notaðu minna þvottaefni — of mikið þvottaefni skilur eftir sig leifar í trefjunum sem geta gert vandann verri
- Forðastu mýkingarefni — mýkingarefni geta lokað í bakteríur í trefjunum
Svitalykt í fötum er ekki merki um óþrifnað eða lélegan fatnað.
Þetta er bakteríuvandamál — og bakteríuvandamál þarfnast bakteríulausnar.
Mosey er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir umhverfisvænar hreinlætnisvörur. Allar vörur eru þróaðar með áherslu á virkni — ekki ilmefni.